[ENGLISH BELOW]
Menningarhátíðir og innviðir sveitarfélaga
Fimmtudaginn 1. október 2026, kl. 08:30-10:00
Gróska, Kristínargata 1, 102 Reykjavík, 3. hæð, hjá Fenris Creations
Hvaða innviðir eru til staðar hjá sveitarfélögum af ólíkri stærð til að halda og styðja við menningarhátíðir? Við fáum þrjú spennandi erindi frá reynslumiklum sérfræðingum sem nálgast viðfangsefnið frá ólíkum sjónarhornum.
Áskell Heiðar Ásgeirsson fjallar um aðgengi að fjármagni og öðrum innviðum fyrir frumkvöðla og hátíðarhald í minni sveitarfélögum og deilir reynslu sinni sem Bræðslustjóri á Borgarfirði eystri. Hvert getur fólk leitað eftir stuðningi við framkvæmd hátíða og hvaða innviðir þurfa að vera til staðar?
Erna Kaaber rýnir í fjármögnun svæðisbundinna aðgerðaáætlana og menningarinnviða sveitarfélaga. Hvernig endurspeglast þróunin í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027? Er menning skilgreind of þröngt þegar kemur að opinberri fjármögnun? Eru viðhald íþróttamannvirkja og menningarhátíðir að sækja fjármagn í sama pott?
Þórgnýr Dýrfjörð setur menningarhátíðir í samhengi við grunnþjónustu sveitarfélaga og þróunina á Akureyri. Að hvaða leyti styðja hátíðir við samfélagið í heild? Hver nýtur góðs af hátíðum og hvaða hlutverki gegna sveitarfélög í því að skapa þeim jarðveg?
Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) stendur fyrir Samtali um skapandi greinar í samstarfi við Fenris Creations.
Viðburðurinn fer fram á íslensku þann 1. október 2026 kl. 08:30-10:00 í húsakynnum Fenris Creations á 3. hæð í Grósku, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.
Viðburðinum verður einnig streymt. Að erindum loknum lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta á staðnum. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.
Vinsamlegast skráið mætingu hér til hliðar.
Upplýsingar um frummælendur
Áskell Heiðar Ásgeirsson er Bræðslustjóri og lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, þar sem hann kennir viðburðastjórnun. Hann hefur víðtæka reynslu af skipulagningu og stjórnun viðburða. Hann var meðal stofnenda tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystri og hefur stýrt hátíðinni allar götur síðan.
Erna Kaaber er rannsakandi sem hefur kannað samspil menningar og nýsköpunar og hvernig menning og skapandi greinar geta skapað tækifæri til sjálfbærrar þróunar og efnahagslegrar uppbyggingar í landsbyggðum. Hún hefur sérstaklega rýnt í hvernig skapandi greinar geta dregið úr landfræðilegum mismuni og stuðlað að auknu jafnvægi milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Þórgnýr Dýrfjörð er forstöðumaður menningar-, markaðs- og atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Akureyri er vettvangur margra og mjög fjölbreyttra stærri árlegra viðburða á sviði menningar og íþrótta, allt frá Andrésar Andarleikunum til Bíladaga, frá Einni með öllu til Akureyrarvöku og A-gjörningahátíðar, svo fáein dæmi séu nefnd. Þórgnýr þekkir því vel til á þessu sviði, bæði sem framkvæmdaraðili en einnig sem fulltrúi sveitarfélags sem styður við og nýtur góðs af viðburðum
//
Cultural Festivals and Municipal Infrastructure
Thursday, 1 October 2026, 8:30-10:00
Gróska, Kristínargata 1, 102 Reykjavík, 3rd floor at Fenris Creations
What kind of infrastructure is available within municipalities of different sizes to organise and support cultural festivals? Three experienced speakers will approach the topic from different perspectives.
Áskell Heiðar Ásgeirsson will discuss access to funding and other forms of support for cultural entrepreneurs and festivals in smaller municipalities, drawing on his experience as director of the Bræðslan music festival in Borgarfjörður eystri. Where can festival organisers turn for support, and what infrastructure needs to be in place?
Erna Kaaber will examine the funding of regional action plans and municipal cultural infrastructure. How is this development reflected in Iceland's 2027 budget proposal? Is culture defined too narrowly when it comes to public funding? Are sports festivals and cultural festivals competing for funding from the same sources?
Þórgnýr Dýrfjörð will place cultural festivals in the context of municipal services and explore how this area has developed in Akureyri. To what extent do festivals benefit the wider community? Who benefits from festivals, and what role do municipalities play in creating the conditions in which they can thrive?
The Icelandic Research Centre for Creative Industries (RSSG) hosts the Conversations on the Creative Industries series in collaboration with Fenris Creations. The event will take place on 1 October 2026 from 8:30 to 10:00 at the Fenris Creations offices on the 3rd floor of Gróska, Kristínargata 1, 102 Reykjavík.
The presentations are in Icelandic, and the event will be livestreamed. The livestream will end after the presentations, followed by an open discussion for those attending in person. Coffee and light refreshments will be served.
Please register using the form on the right.
About the speakers
Áskell Heiðar Ásgeirsson is the director of the Bræðslan music festival and a lecturer at the Department of Rural Tourism at Hólar University, where he teaches event management. He has extensive experience in organising and managing events. He was one of the founders of the Bræðslan music festival in Borgarfjörður eystri and has managed the festival ever since.
Erna Kaaber is a researcher whose work has explored the relationship between culture and innovation and how culture and the creative industries can create opportunities for sustainable development and economic growth in rural areas. Her work has particularly examined how the creative industries can help reduce geographical disparities and contribute to a better balance between urban and rural areas.
Þórgnýr Dýrfjörð is Director of Business Development, Culture and Marketing at the Municipality of Akureyri. Akureyri hosts a wide range of major annual cultural and sporting events, from the Andrés Duck Ski Games and Bíladagar motor festival to the Einn með öllu festival, Akureyrarvaka and the A! Performance Festival. Þórgnýr therefore brings extensive experience from both sides of the table: as an event organiser and as a representative of a municipality that supports events and benefits from the cultural, social and economic activity they generate.