Sköpunarkrafturinn

Kosningafundur í Grósku 6. nóvember kl. 8:30 - 10:00.

Hagrænar mælingar hafa undanfarin ár sýnt fram á öran vöxt og fjölgun starfa innan Skapandi greina. Innan þeirra felast mikil og vannýtt tækifæri til nýrrar nágunar og nýsköpunar í atvinnulífi og samfélagi, enda eru jákvæð áhrif menningar og skapandi greina á lífsgæði, mannlíf og samfélag óumdeild.

Fulltrúar allra framboða til alþingiskosninga taka þátt. 

Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur er kynnir og stýrir umræðum.                                                                             

Í pallborði verða:

Ása Berglind Hjálmarsdóttir fyrir Samfylkingu
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn
Björn Leví Gunnarsson fyrir Pírata
Eyjólfur Ármannsson fyrir Flokk fólksins
Gunnar Smári Egilsson fyrir Sósíalistaflokkinn
Jakob Frímann Magnússon fyrir Miðflokkinn
Lilja Alfreðsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn
Svandís Svavarsdóttir fyrir VG
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrir Viðreisn

Fundurinn er öllum opinn og verður streymt hér. Boðið er uppá kaffi og bakkelsi fyrir fundinn.

Að fundinum standa Rannsóknarsetur í skapandi greinum, Samtök Skapandi greina, Bókmenntamiðstöð, Miðstöð hönnunar og arktitektúrs, Myndlistamiðstöð, Kvikmyndamiðstöð, Sviðslistamiðstöð, Tónlistarmiðstöð í samstarfi við CCP, Brandenburg, Vísindagarða og Grósku.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér 

Viðburðurinn á Facebook

Next
Next

Málþing um áhrif menningar og skapandi greina í landsbyggðum